Fara á efnissvæði

Deild erlendra hjúkrunarfræðinga

Deild erlendra hjúkrunarfræðinga er faglegur vettvangur innan Fíh sem styður hjúkrunarfræðinga með erlendan bakgrunn á Íslandi og eflir þátttöku þeirra í heilbrigðiskerfinu.

Um deildina

Deild erlendra hjúkrunarfræðinga var stofnuð 19. maí 2026.

Markmið deildarinnar eru að:

  • Hafa áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum, einkum í málum er varðar stöðu, aðlögun og starfsskilyrði hjúkrunarfræðinga með erlendan bakgrunn og þjónustu við fjölbreyttan skjólstæðingahóp.
  • Efla menntun, tungumálakunnáttu og fagþróun hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna og stuðla að menningarhæfni í hjúkrun.
  • Stuðla að miðlun þekkingar, rannsóknar og reynslu sem tengist fjölmenningarlegri hjúkrun, aðlögun heilbrigðisstarfsfólks og gæðum þjónustu.
  • Vera tengiliður við Fíh sem gætir hagsmuna félagsmanna.
  • Byggja upp gott samstarf við fagdeildir Fíh, erlend fagfélög og önnur samtök hjúkrunarfræðinga með áherslu á miðlun þekkingar og reynslu hjúkrunarfræðinga með erlendan bakgrunn sem starfa í íslensku heilbrigðiskerfi .
  • Vera Fíh, stjórn þess og nefndum til ráðgjafar í málefnum sem varðar erlenda hjúkrunarfræðinga, fjölbreytileika og inngildingu í íslenskt heilbrigðiskerfi.

Stjórn

Formaður

Wendill Galan Viejo

Varaformaður

Cathrine Chalupka

Ritari

Angeli Gaviola Openiano

Gjaldkeri

Joanne Blank

Meðstjórnandi

Tita Valle

Varamaður

Marianne Elisabeth Klinke

Varamaður

Marvi Gil

Merki deildarinnar

Merkið táknar samfélag, samstöðu og fjölbreytileika í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Fjórar litaðar manneskjur vísa til samvinnu, þátttöku og inngildingar, en krossinn í miðjunni undirstrikar tenginguna við Ísland. Í heild sinni endurspeglar merkið teymisvinnu, einingu og sameiginlega ábyrgð á velferð samfélagsins.

Starfsreglur