Orlofssjóður
Sjóðfélagar orlofssjóðs eru hjúkrunarfræðingar sem greiða í orlofssjóð, og byggir sjóðurinn á punktakerfi. Sjóðfélagar ávinna sér 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð á ári, og geta nýtt sér þá svo lengi sem punktaeign sé nægjanleg fyrir viðskiptum. Þetta á líka við um eftirlaunaþega þar til punktar þeirra eru uppurnir. Til að geta gengið frá kaupum á vef orlofssjóðs er nauðsynlegt að hafa rafræn skilríki.
Punktar
Hver sjóðfélagi ávinnur sér 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð. Uppfærsla á orlofspunktum fer fram í lok febrúar ár hvert skv. skilagreinum frá vinnuveitanda fyrir árið á undan. Hafi skilagreinar ekki borist frá vinnuveitendum fyrir undangengið ár verða þeir punktar ekki uppfærðir fyrr en í febrúar ári síðar. Fjöldi punkta stýrir því hverjir eru í forgangi til bókunar á orlofshúsnæði hverju sinni, og þeir ganga fyrir sem flesta punkta eiga. Punktar eru dregnir frá við bókun, en eru þó ekki greiðsla fyrir leigu. Að hámarki er hægt að nota 40 punkta á hverju almanaksári.
Punktastýrð forgangsopnun á bókun orlofshúsnæðis fyrir sumartíma 2026. Einungis þeir sem eiga tilskilinn fjölda orlofspunkta komast inn á orlofsvef til að bóka fyrir orlofstímabilið (júní, júlí og ágúst), sjá nánar undir Sumar 2026.
Almennar bókanir
Athugið að neðangreint á ekki við um sumarúthlutanir orlofshúsa, þar er punktastýrð forgangsopnun. Sjá nánar undir flipanum Sumar 2026.
Fyrsta hvers mánaðar kl. 10:00 opnar bókunarkerfi orlofsvefsins fyrir bókanir þremur mánuðum síðar eins og segir í töflunni hér neðan við. Sjóðfélagar sem búa á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri geta ekki leigt eignir í sínu heimasveitafélagi, eða nærumhverfi, fyrr en tvær vikur eru til leigudags.
Þann fyrsta hvers mánaðar hefst skráning fyrir bókanir þremur mánuðum síðar, að sumarmánuðum frátöldum
janúar -> apríl
febrúar -> maí
júní -> september
júlí - > október
ágúst- > nóvember
september -> desember
október -> janúar
nóvember -> febrúar
desember -> marsViðskipti með orlofshúsnæði eru punktalaus á veturna ef:
- Leigutími hefst innan viku frá bókun
- Eingöngu eru bókaðir dagar í miðri viku
Sumar 2026
Orlofsvefurinn verður stilltur þannig að einungis þeir sjóðfélagar sem eiga tilskilinn fjölda orlofspunkta og hafa ekki leigt síðastliðinn 2 ár í júní, júlí og ágúst geta bókað á eftirfarandi dögum:
Frá 16.mars kl.10:00 - þeir sem eiga 112 punkta og fleiri, og hafa ekki leigt orlofshús síðastliðin 2 ár, geta bókað og greitt
Frá 17.mars kl.10:00 - þeir sem eiga 82 punkta og fleiri, og hafa ekki leigt orlofshús síðastliðin 2 ár, geta bókað og greitt
Frá 18.mars kl.10:00 - þeir sem eiga 15 punkta og fleiri, og hafa ekki leigt orlofshús síðastliðin 2 ár, geta bókað og greitt
Almenn opnun fyrir bókanir í orlofshúsin fyrir sumarið verður svo miðvikudaginn 1. apríl 2026, þ.e.a.s. fyrir alla sjóðfélaga burt séð frá því hvort þeir hafi leigt síðastliðin 2 ár eða ekki, en þeir verða eftir sem áður að eiga nægilega marga punkta.
Við bókun orlofshúsnæðis eru punktar dregnir frá á eftirfarandi tímabilum:
6. - 13. júní - 15 punktar í frádrátt
13. júní til 15. ágúst - 20 punktar í frádrátt
15. ágúst til 29. ágúst - 15 punktar í frádrátt
Afbókanir
Hver notandi getur afbókað sjálfur með því að fara inn á orlofssvefinn og velja viðkomandi hús og fella niður bókun, eða hafa samband við skrifstofu Fíh.
Sé afbókað með viku fyrirvara eða meira fæst 80% leigufjárhæðar endurgreiddar ásamt punkta endurgreiðslu.
Við neyðaraðstæður áskilur Fíh sér rétt til þess að afturkalla leigu félagsfólks á orlofshúsi án fyrirvara. Við neyðaraðstæður á félagsfólk rétt á fullri endurgreiðslu leigufjárhæðar. Frekari bótaréttur skapast ekki.
Gjafabréf og kort
Gjafabréf og kort eru fáanleg á orlofsvef félagsins undir liðnum Gjafabréf. Bréfin og kortin eru á sérstökum kjörum fyrir sjóðfélaga og eru niðurgreidd af Orlofssjóði.
Gjafabréf Icelandair gilda í fimm ár frá útgáfudegi (til Fíh). Gjafabréfin eru að andvirði kr. 30.000. Hægt er að kaupa allt að þrjú gjafabréf í flug á ári á meðan birgðir endast. Athugið að ekki er hægt að greiða með gjafabréfi eftir að ferðin hefur verið bókuð og greidd og ekki er hægt að fá gjafabréf endurgreidd hjá Fíh.
Verð pr. bréf: kr. 21.150 og 3 punktar
Orlofssjóður niðurgreiðir fyrir sjóðfélaga 4 flugmiða á ári frá Flugfélaginu Erni. Einungis flugmiðar á nafni og kennitölu sjóðfélaga eru niðurgreiddir. Niðurgreiðslan fer fram með millifærslu inn á reikning sjóðfélaga eftir að hann hefur sent kvittun fyrir flugmiða og afrit af honum, með nafni og kennitölu á hjukrun@hjukrun.is.
Niðurgreiðsla flugmiða: kr. 7.500 og 2 punktar
Ódýrari gisting býðst gegn framvísun hótelmiða sem kaupa má á vef Orlofssjóðs. Verð eru mismunandi eftir árstíðum, hótelum og stærð herbergja. Hægt er að kaupa að hámarki fjögur bréf á hvert hótel.
Hey Iceland gjafabréf (heyrir undir Ferðaþjónustu bænda) býður upp á gistingu á yfir 170 gististöðum um allt land auk þess að bjóða upp á veitingar og fjölbreytta afþreyingu. Fyrir 4.900 kr. og 2 punkta fá sjóðfélagar kóða að andvirði kr. 10.000.
Sjá nánari upplýsingar Hey Iceland undir gjafabréf.
Sjóðfélagi getur keypt 2 gjafabréf að verðmæti 20.000 kr. á ári. Athugið að aðeins er hægt að nota eitt gjafabréf á mann í ferð hjá Útivist og aðeins í þær ferðir sem auglýstar eru í ferðaáætlun félagsins.
Verð Útivist kr. 10.000 og 2 punktar
Verð Ferðafélags Íslands kr. 13.400 og 2 punktarVeiðikortið veitir handhafa ótakmarkaða veiði í 35 veiðivötnum víðs vegar á landinu, og einnig er hægt að tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Einungis er hægt að kaupa tvö veiðikort á ári. Í ítarlegum bæklingi sem fylgir kortinu eru vötnin kynnt sem og þær reglur sem gilda við hvert vatnasvæði.
Verð: kr. 5.900 og 1 punktur
Kortið veitir eiganda þess, maka og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins utan gistináttaskatts sem er kr. 111 pr einingu. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti á hverju tjaldsvæði.
Nánari upplýsingar um tjaldstæðin er að finna á www.utilegukortid.is
Menningarkort Reykjavíkur gildir sem árskort í Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn), Borgarsögusafn Reykjavíkur (Árbæjarsafn, Landnámssýningu og Sjóminjasafn) og fá handhafar auk þess bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur. Kortið gildir á allar sýningar og viðburði á vegum safnanna og veitir að auki 10% afslátt á veitingastaði safnanna, safnverslanir og fleira. Hver sjóðfélagi getur keypt tvö kort. Kortið er virkjað í fyrstu notkun og gildir í eitt ár frá þeim degi.
Nánari upplýsingar er að finna á www.menningarkort.isVerð kr. 4.200 og 1 punktur
Orlofssjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga býður sjóðfélugum sínum að kaupa gjafabréf frá
Ferðaskrifstofu Íslands sem gilda munu í pakkaferðir á vegum Sumarferða og Úrvals-Útsýnar.Vinsamlega hafið samband við Úrval Útsýn til að bóka ferð. Sölu og þjónustuver: sími 585 4000, info@urvalutsyn.is
Hver sjóðfélagi getur fengið allt að 2 afsláttarmiða á ári, en nota má tvo afsláttarmiða í hverja bókun, svo framarlega sem a.m.k. tveir farþegar séu í bókun.
Afsláttarmiðinn kostar félagsmanninn kr. 20.500 en er á andvirði kr. 30.000, frádrag 3 punktar.
Gjafabréfin gilda ekki í jóla- og páskaferðir eða í áætlunarflug sem tengjast sérferðum.
Ekki er hægt að fá gjafabréfin endurgreidd, endurgreiðsla er í formi inneignarnótu hjá Úrval Útsýn.
Spánarfrí bjóða félagsmönnum hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga áfram sérstakan afslátt fyrir vikuna á stjörnumerktum ** húsum.
Um leið og bókað er þarf að taka fram að um félagsmenn Fíh sé að ræða til að fá afsláttinn. Þeir útvega einnig akstur til og frá flugvelli svo og bílaleigubíla. Farið er inn á neðangreinda slóð til þess að velja sér hús við hæfi:
Stjórn sjóðsins
Auður Sveinbjörg Jóhannsdóttir
Guðný Valgeirsdóttir
Halla Hrund Arnardóttir
Inga Valborg Ólafsdóttir
Ingunn Steinþórsdóttir
Úthlutunarreglur
Um sjóðsaðild, rétt og skyldur sjóðsfélaga og skipulag sjóðsins gilda starfsreglur Orlofssjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (OFíh), samþykktar af stjórn Fíh en reglurnar tóku gildi 4. mars 2026. Samkvæmt 5. gr. þeirra setur sjóðsstjórn nánari úthlutunarreglur sem skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en árlega og samþykktar af stjórn Fíh.
1. Punktar - ávinnsla og notkun
Sjóðfélagi ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð sem greiðsla til sjóðsins berst frá launagreiðanda. Punktainneign er uppfærð árlega eftir að allar skilagreinar ársins hafa borist.
Bókanir eru byggðar á punktaeign sjóðfélaga. Fyrir hvern orlofskost dragast einn eða fleiri punktar frá punktaeign sjóðfélaga.
Sjóðfélagi sem hefur nýtt punkta sína að fullu á ekki rétt á úthlutunum eða niðurgreiðslu orlofskosta hjá sjóðnum. Sjóðfélögum og félagsfólki Fíh, sem eiga ekki punkta, er heimilt að leigja orlofseignir þegar þær eru boðnar til leigu punktalaust.
Að hámarki er hægt að nota 40 punkta í viðskiptum við Orlofssjóð á hverju almanaksári.
Viðskipti með orlofshúsnæði eru punktalaus frá september til maí þegar leigutími hefst innan við viku frá bókun eða þegar eingöngu eru bókaðir dagar í miðri viku í sumarhúsum.
Allar bókanir orlofssjóðs fara fram á orlofsvef.
2. Leigugjald orlofskosta
Gildandi verðskrá orlofskosta er að finna á vef Fíh. Greiða þarf leigu við bókun og fyrir gjafabréf og kort við kaup.
3. Úthlutun orlofshúsnæðis
a. Almenn úthlutun orlofshúsnæðis
Almennar úthlutunarreglur gilda á tímabilinu september til maí. Í upphafi mánaðar, þ.e. kl. 10:00 þann fyrsta, opnar fyrir bókanir í mánuði á tímabilinu sem hefst þremur mánuðum síðar, sem dæmi opnar fyrir bókanir í apríl þann 1. janúar.
Opnað er fyrir alla virka félagsmenn en þó geta sjóðsfélagar sem búa á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri ekki leigt eignir í sínu heimasveitafélagi (nærumhverfi) fyrr en tvær vikur eru til leigudags.
Bókanir yfir helgar eru alltaf frá föstudegi fram á mánudag. Aðra daga er hægt að bóka stakar nætur en hámarkstími er ein vika í senn og gildir þá vikuverð. Undantekning frá þessu er að orlofshús í Hlíðarfjalli eru í vikuleigu allt árið.
Á tímabilinu getur hver sjóðfélagi gert 3 bókanir að hámarki í 14 gistinætur.
b. Sumarúthlutun orlofshúsa
Sérstök sumarúthlutun orlofshúsa er fyrir júní til ágúst ár hvert. Eingöngu er boðið upp á leigu í viku í senn á tímabilinu og gildir það um allar eignir Orlofssjóðs. Hver sjóðfélagi getur bókað eina viku á tímabilinu.
Hefja skal punktastýrða sumarbókun orlofshúsa eigi síðar en 25. mars ár hvert.
Punktastýrð forgangsopnun er þrískipt þannig að fyrsta dag opnunarinnar geta þeir sem eiga 112 punkta eða fleiri bókað orlofshús á orlofsvef, annan daginn geta þeir sem eiga a.m.k 82 punkta bókað og þriðja daginn opnast fyrir þá sem eiga 15 punkta eða fleiri. Á öllum þessum dögum er gerð krafa um að sjóðfélagi hafi ekki leigt orlofshús síðast liðin tvö sumur. Opnað er fyrir bókanir í forgangsopnun kl. 10:00 umrædda daga.
Almenn opnun fyrir sumarbókanir orlofshúsa er 1. apríl fyrir þær vikur sem ekki hafa verið bókaðar í forgangsopnun.
Skiptidagar eru mismunandi milli húsa.
4. Afbókanir og endurgreiðslur
Afbókanir fara fram á orlofsvef. Sé afbókað með viku fyrirvara eða meira fæst 80% leigufjárhæðar endurgreiddar ásamt punkta endurgreiðslu.
Sjóðfélagi fær fulla endurgreiðslu leigugjalds ef mistök urðu við bókun. Í þessu tilviki þarf sjóðfélagi að afbóka inn á bókunarvefnum innan við 72 klst. frá því að hann greiddi fyrir bókun sína.
Ef veikindi hindra dvöl sjóðfélaga fær hann 100% endurgreiðslu óháð því hversu langur tími er í að dvöl í orlofskosti hefjist en senda þarf tölvupóst á hjukrun@hjukrun.is eða hringja á skrifstofu félagsins. Sjóðfélagi þarf síðan að skila inn læknisvottorði ef um veikindi er að ræða á netfangið hjukrun@hjukrun.is Vottorðið má hins vegar berast eftir að dvöl hefst en innan mánaðar frá tilkynningu um veikindi og afbókun.
Ef galli eða aðbúnaður hefur rýrt gæði orlofsdvalar endurgreiðir sjóðurinn hluta leigugjalds. Sjóðfélagi þarf alltaf að hafa samband við umsjónarmann á meðan dvöl stendur og upplýsa umsjónarmann um aðstæður. Síðan senda tölvupóst á hjukrun@hjukrun.is og senda myndir ef við á. Vafamál eru lögð fyrir stjórn Orlofssjóðs sem úrskurðar í þeim málum.
Ef Vegagerðin lokar vegum vegna ófærðar sem gerir það að verkum að sjóðfélagi kemst ekki í bókaðan orlofskost þá getur sjóðfélagi óskað eftir 100% endurgreiðslu. Senda þarf tölvupóst á hjukrun@hjukrun.is.
Við neyðaraðstæður áskilur Fíh sér rétt til þess að afturkalla leigu sjóðsfélags á orlofshúsi án fyrirvara. Við neyðaraðstæður eiga sjóðfélagar rétt á fullri endurgreiðslu leigufjárhæðar. Frekari bótaréttur skapast ekki.
5. Reglur orlofshúsa
a. Skiptitími
Komutími er kl.: 17:00
Brottfarartími er kl.: 12:00
*nema annað sé tekið fram á leigusamningi
b. Framleiga á leigurétti
Bannað er að framleigja öðrum leigurétt eða leyfa öðrum óviðkomandi að leigja í sínu nafni eignir Orlofssjóðs eða þær eignir sem sjóðurinn hefur á leigu. Ef sjóðfélagi verður uppvís að framleigu á leigurétti eða hefur leyft öðrum óviðkomandi að leigja í sínu nafni missir sjóðfélagi rétt til úthlutunar orlofshúsnæðis í þrjú ár.
c. Umgengni
Fylgja skal umgengisreglum og reglum um þrif sem birtar eru á orlofsvef og eru til staðar í orlofshúsnæði. Áminnt er vegna brota á umgengisreglum. Ef þrifum á orlofshúsnæði sjóðsins er ábótavant ber leigutaka að greiða sérstakt þrifagjald skv. verðskrá. Við endurtekið brot á umgengisreglum missir sjóðsfélagi rétt til leigu orlofshúsnæðis í tvö ár.
d. Ábendingar
Ef orlofsaðstöðu er ábótavant eru sjóðfélagar beðnir um að láta skrifstofu Fíh á netfangið hjukrun@hjukrun.is eða umsjónamann vita sem allra fyrst.
6. Gjafabréf og kort
Orlofssjóður Fíh niðurgreiðir gjafabréf og kort til að auðvelda sjóðsfélögum að njóta orlofs. Eftirtalin gjafabréf og kort eru niðurgreidd og til sölu á orlofsvef félagsins. Gjafakort og miðar eru ekki endurgreidd.
- Gjafabréf hjá Icelandair
Gjafabréf Icelandair gilda í fimm ár frá útgáfudegi (til Fíh). Gjafabréfin eru að andvirði 30.000 kr. Hægt er að kaupa allt að þrjú gjafabréf í flug á ári á meðan birgðir endast.
- Hótelmiðar og gjafabréf á hótel
Félagið seldur niðurgreidda hótelmiða og gjafabréf á ýmis hótel. Verð eru mismunandi eftir árstíðum, hótelum og stærð herbergja. Hægt er að kaupa að hámarki fjögur bréf á hvert hótel.
Fosshótel er með gjafabréf að andvirði 25.000 kr. og getur hver sjóðfélagi keypt 4 bréf á ári.
- Hey Iceland
Hver sjóðfélagi getur keypt fjögur gjafabréf að andvirði 10.000 kr. á ári.
- Gjafabréf í ferðir hjá Útivist og Ferðafélagi Íslands
Sjóðfélagi getur keypt tvö gjafabréf að verðmæti 20.000 kr. á ári.
- Veiðikortið
Sjóðfélagi getur keypt tvö veiðikort á ári.
- Útilegukortið
Sjóðfélagi getur keypt eitt kort á ári. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti á hverju tjaldsvæði.
- Menningarkort Reykjavíkur
Hver sjóðfélagi getur keypt tvö kort. Kortið er virkjað í fyrstu notkun og gildir í eitt ár frá þeim degi.
- Úrval/Útsýn
Hver sjóðfélagi getur keypt tvo gjafabréf að andvirði 30.000 kr. á ári.
Gildistaka
Úthlutunarreglur þessar voru samþykktar af stjórn Orlofssjóðs Fíh og stjórn Fíh 4. mars 2026 og taka gildi frá þeim degi. Þær skulu birtar opinberlega á vefsvæði Fíh.
Starfsreglur
1.gr. Nafn og heimili
Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í reglum þessum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
2.gr. Hlutverk
Sjóðnum er ætlað að auðvelda sjóðfélögum að njóta orlofs. Sjóðurinn rekur orlofshúsnæði félagsins og semur um aðra orlofskosti fyrir sjóðfélaga.
3.gr. Aðild
Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar, hér eftir nefndir sjóðfélagar, sem fá greidd laun samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og vinnuveitandi greiðir fyrir í Orlofssjóð Fíh.
Þeir sjóðfélagar sem eru með fag-, lífeyris- og nemaaðild njóta fullra réttinda á meðan þeir eiga punkta. Sama gildir um atvinnuleitendur og öryrkja. Um frekari punktaávinnslu er ekki að ræða.
Sjóðfélagar í fæðingarorlofi njóta óskertra réttinda ef þeir greiða félagsgjöld af greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Sjóðfélagar í fæðingarorlofi ávinna sér þó ekki punkta.
4.gr. Sjóðsstjórn
Stjórn sjóðsins skipa fimm félagsmenn kjörnir á aðalfundi Fíh úr hópi þeirra félagsmanna sem rétt eiga, samkvæmt reglum sjóðsins, til úthlutunar úr sjóðnum. Stjórn Orlofssjóðs skal kjörin til tveggja ára í senn.
Stjórn skiptir með sér verkum og skal skipa formann, ritara og meðstjórnendur.
Enginn stjórnarmaður skal sitja lengur en 8 ár samfellt í stjórn sjóðsins. Komi til þess að stjórnarmenn láti af störfum skal stjórn Fíh skipa í stjórnina fram að næsta aðalfundi Fíh.
Stjórn skal skrá fundargerðir.
5. gr. Skyldur sjóðsstjórnar
Stjórn Orlofssjóðs kemur saman að jafnaði átta sinnum á ári. Sjóðsstjórn setur úthlutunarreglur sem skulu endurskoðaðar árlega og samþykktar af stjórn Fíh.
Stjórn Orlofssjóðs skal kynna með góðum fyrirvara úthlutunarreglur og þá þjónustu sem stendur sjóðfélögum og félagsfólki til boða á hverjum tíma.
Stjórn Orlofssjóðs sér til þess að eignum sjóðsins sé vel við haldið og er vakandi fyrir nýjum möguleikum varðandi orlofskosti sjóðsins.
Fyrir aðalfund Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skal stjórn Orlofssjóðs leggja fram skýrslu um starfsemi og reikninga sjóðsins. Fjármálastjóri félagsins gerir grein fyrir reikningum sjóðsins á aðalfundi Fíh.
6.gr. Skyldur vinnuveitenda
Vinnuveitendur greiða iðgjald til sjóðsins sem nemur 0,25% af heildarlaunum sjóðfélaga, sbr. ákvæði kjarasamninga Fíh um framlag í Orlofssjóð.
7.gr. Réttur sjóðfélaga
Sjóðfélagar hafa rétt til að nýta sér þjónustu sjóðsins samkvæmt reglum hans á hverjum tíma. Upplýsingar um þjónustu sjóðsins skulu ávallt vera vel uppfærðar á vefsvæði Fíh.
Sjóðfélagi ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð sem vinnuveitandi greiðir í sjóðinn fyrir viðkomandi. Punktainneign er uppfærð árlega eftir að allar skilagreinar ársins hafa borist.
8.gr. Skyldur sjóðfélaga
Sjóðfélögum ber skylda til að ganga vel um eignir á vegum Orlofssjóðs Fíh. Sjóðfélagi ber ábyrgð á því húsnæði sem hann hefur á leigu og skuldbindur sig til að bæta það tjón sem verða kann af hans völdum, hvort heldur er af ásetningi eða gáleysi.
9.gr. Bókanir
Bókanir eru byggðar á punktaeign sjóðfélaga og fara fram á Mínum síðum. Vísað er til úthlutunarreglna sjóðsins varðandi reglur um bókanir.
10.gr. Tekjur
Stofnfé sjóðsins er Orlofssjóður Hjúkrunarfélags Íslands. Tekjur Orlofssjóðs eru kjarasamningsbundnar greiðslur launagreiðenda sjóðfélaga, tekjur af útleigu eiga sjóðsins, vextir og gjafir.
11.gr. Rekstur
Stjórn Orlofssjóðs fer með rekstur sjóðsins í umboði stjórnar félagsins. Allar kostnaðarsamar ákvarðanir varðandi rekstur, fjárfestingar, skuldbindingar, kaup eða sölu eigna skal bera undir stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Sjóðurinn skal hafa sjálfstætt bókhald og vera ávaxtaður sérstaklega. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Rekstur sjóðsins skal standa undir sér.
Endurskoðendur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og kjörnir skoðunarmenn reikninga, endurskoða reikninga Orlofssjóðs sem eru hluti af ársreikningi Fíh.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ber ábyrgð á eigum sjóðsins. Verði Orlofssjóður lagður niður ráðstafar aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eigum hans.
12.gr. Úrsögn
Sjóðfélagi telst segja sig úr Orlofssjóði Fíh ef umsamin orlofssjóðsframlög skv. 3. gr. hætta að berast sjóðnum.
Sjóðfélagi getur ekki gert kröfu um hlutdeild í eigum sjóðsins við úrsögn.
Sjóðfélagar sem eru með fag-, lífeyris- og nemaaðild ásamt atvinnuleitendum og öryrkjum, teljast ekki lengur sjóðsfélagar þegar punktaeign þeirra er uppurin sbr. 3. gr.
Gildistaka og önnur ákvæði
Breytingar á starfsreglum Orlofssjóðs Fíh skal leggja fyrir stjórn Fíh til samþykktar. Breytingar skal kynna á viðeigandi vettvangi og uppfæra á vefsvæði félagsins.
Reglur þessar voru samþykktar af stjórn Orlofssjóðs Fíh og stjórn Fíh og taka gildi 4.mars 2026.





