Fara á efnissvæði
Viðburður

Heimsókn ÖFíh í Eirberg

Öldungadeild Fíh heimsækir Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands í Eirbergi (áður húsnæði Hjúkrunarskóla Íslands) 26. maí kl. 13-15. Skráning fyrir neðan.

Dagsetning
26. maí 2026
Tími
13:00 - 15:00

Kynning á verkefnum deildarinnar og sérstök kynning á Færni- og hermisetri heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands hefur boðið félögum öldungadeildar Fíh í heimsókn 26. maí nk. kl. 13-15.

Heimsóknin hefst í stofu C-101 (á fyrstu hæð þar sem áður var setustofa) þar sem farið er yfir helstu verkefni deildarinnar síðustu árin og þau sem framundan eru.

Að lokinni kynningu verður farið upp á 2. hæð byggingarinnar þar sem Þorsteinn Jónsson aðjúnkt og forstöðumaður Hermís, Ásdís Guðmundsdóttir aðjúnkt og formaður stjórnar færni- og hermiseturs Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideilda og Baldur Vignir Karlsson verkefnisstjóri færni- og hermisetranna, taka á móti okkur og kynna starfsemi Hermisetursins. Hermisetrið hefur gjörbreytt verklegri kennslu í hjúkrunarfræði og öðrum heilbrigðisgreinum HÍ, auk þess sem það er notað til þjálfunar heilbrigðisstarfsfólks LSH.

Látið vita við skráningu hvort viðkomandi þarf aðstoð vegna hreyfihömlunar.

Lyfta er í Eirbergi, en til að komast í stofu C-101 þarf annaðhvort að fara niður nokkur þrep af miðpalli eða koma inn um inngang á C-álmu þar sem farið er í stofu C-105.

Hvatt er til þess að þátttakendur deili bílum, komi gangandi eða fái akstur, þar sem bílastæði við LSH eru að skornum skammti eins og allir vita.

Stjórn öldungadeildar Fíh