Útgefnar starfsmatsniðurstöður fyrir störf hjúkrunarfræðinga hjá sveitarfélögum:
Hvað er starfsmat?
Starfsmat er greiningartæki er metur innbyrðis vægi starfa út frá ákveðnum forsendum. Starfsmat er notað hjá sveitarfélögum til þess að leggja með samræmdum hætti mat á ólík störf og á að auka sýnileika launaröðunar og tryggja að hjúkrunarfræðingum séu ákvörðuð laun með eins málefnalegum og hlutlægum aðferðum og hægt er.
Starfsmat á að leiða til þess að störfum sé raðað þannig til grunnlauna að þau séu hin sömu fyrir störf sem metin eru jafnkrefjandi, óháð starfsstöðum, stéttarfélagi eða kyni. Starfsmat metur aðeins grunnkröfur til starfa en ekki einstaklingsbundna hæfni starfsmanna eða frammistöðu í starfi.
Nánari upplýsingar um starfsmatskerfi má finna á vef Verkefnastofu Starfsmats.