Fara á efnissvæði
Frétt

Umsóknir í Styrktarsjóð og Starfsþróunarsetur ekki afgreiddar í júlí

Ef sótt er um í Styrktarsjóð eða Starfsþróunarsetur Fíh fyrir lok maí verða umsóknirnar afgreiddar í júní. Umsóknir sem berast í júní verða afgreiddar í ágúst.

Vakin er athygli á því að samkvæmt úthlutunarreglum Styrktarsjóðs eru heilsu- og fæðingarstyrkir ekki greiddir út í júlí, sama á við um umsóknir í Starfsþróunarsetur Fíh.

Fullgildar umsóknir sem berast fyrir lok maí mánaðar verða greiddar út í júní. Umsóknir sem berast í júní og júlí verða greiddar út í ágúst.

Úr Styrktarsjóði er að jafnaði greitt út 24.-26. dag hvers mánaðar (eða næsta virka dag þar á eftir) vegna umsókna sem bárust í mánuðinum á undan.

Út Starfsþróunarsetri er að jafnaði greitt út 15.-17.dag hvers mánaðar (eða næsta virka dag þar á eftir) vegna umsókna sem bárust í mánuðinum á undan.

Einungis sjúkradagpeningar verða greiddir út í júlí.

Nýjar umsóknir vegna sjúkradagpeninga í júlí þurfa að berast eigi síðar en 6. júlí.

Sótt er um í Styrktarsjóð og Starfsþróunarsetur Fíh á Mínum síðum.