Stjórn Vísinda- og rannsóknarsjóðs (áður B-hluti Vísindasjóðs) auglýsir eftir umsóknum úr sjóðnum. Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Mínar síður á þar til gerðu eyðublaði ásamt fylgiskjölum fyrir miðnætti 15. mars 2026.
Markmið sjóðsins er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif hjúkrunarfræðinga. Aðild að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar sem eru félagar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og launagreiðendur hafa greitt fyrir í Vísindasjóð á árinu 2025.
Hér fyrir neðan má nálgast umsóknareyðublað sem skila þarf inn ásamt fylgiskjölum í gegnum Mínar síður. Nánari upplýsingar, þar á meðal úthlutunarreglur sjóðsins, er að finna á vefsvæði Vísinda-og rannsóknarsjóðar. Fyrirspurnir varðandi umsóknir má senda á visindasjodur@hjukrun.is.





