Um deildina
Deild hjúkrunarfræðinga á Norðvesturlandi var stofnuð 20. nóvember 2017. Hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og búa eða starfa á Norðvesturlandi geta orðið félagsmenn í deildinni. Sækja þarf um aðild að deildinni.
Tilgangur deildarinnar er að vinna að eflingu og framgangi hjúkrunar á Norðvesturlandi. Deildin skal vera stjórn og nefndum félagsins ráðgefandi um málefni hjúkrunar (skv. lögum Fíh 12.gr.).
Tilgangi sínum hyggst deildin ná m.a. með því að:
- Stuðla að bættri menntun félagsmanna
- Fylgjast með framförum og nýjungum og koma þeim á framfæri
- Stuðla að nánari samstarfi við aðra hjúkrunarfræðinga og starfsstéttir
Stjórn
Formaður
Íris Sveinbjörnsdóttir
Varaformaður
Ingibjörg Ásta Sigurðardóttir
Gjaldkeri
Jónína Daníelsdóttir
Ritari
Þóra Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Meðstjórnandi
Margrét Sæmundsdóttir
Starfsreglur
1.gr. Nafn
Nafn landsvæðadeildarinnar er Deild hjúkrunarfræðinga á Norðvesturlandi. Deildin starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Heimili og varnarþing er í Reykjavík en umdæmið er Norðvesturland. Um þau atriði sem ekki koma fram í þessum samþykktum gilda lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh).
2.gr. Tilgangur
Tilgangur deildarinnar er að vinna að eflingu og framgangi hjúkrunar á Norðvesturlandi. Deildin skal vera stjórn og nefndum félagsins ráðgefandi um málefni hjúkrunar (skv. lögum Fíh 12.gr.).
3.gr. Stefna
Tilgangi sínum hyggst deildin ná m.a. með því að:
- Stuðla að bættri menntun félagsmanna
- Fylgjast með framförum og nýjungum og koma þeim á framfæri
- Stuðla að nánari samstarfi við aðra hjúkrunarfræðinga og stafsstéttir
4.gr. Félagsaðild
Rétt til aðildar að deildinni eiga hjúkrunarfræðingar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa og/eða búa á Norðvesturlandi.
Umsókn um aðild að deildinni skal berast til stjórnar deildar. Úrsögn úr deildinni er hægt að skila skriflega til stjórnar. Einnig getur stjórn litið á það sem úrsögn ef félagsmaður hefur ekki greitt árgjald deildarinnar tvö ár í röð.
5.gr. Starfstímabil
Starfstímabil deildarinnar er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
6.gr. Aðalfundur
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum deildarinnar. Aðalfund skal halda að vori ár hvert og skal boða til hans með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara með sannarlegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Fundarboði skal fylgja dagskrá og tillögur sem fyrir honum liggja. Tillögur að breytingu á lögum skal berast stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
7.gr. Stjórn
Stjórn deildarinnar skal skipuð fimm félagsmönnum, kjörnum á aðalfundi, til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn. Meirihluti aðalfundar ræður kjöri. Kjöri skal þannig háttað að aldrei gangi fleiri en þrír kjörnir stjórnendur auk annars varamanns úr stjórn hverju sinni. Stjórnin skiptir með sér verkum, gjaldkera, ritara og tveggja meðstjórnenda. Kosning skal vera skrifleg og leynileg og fara fram eftir venjulegum reglum meirihluta atkvæða.
Stjórn deildarinnar fer með málefni hennar milli aðalfunda. Formaður boðar til funda.
8.gr. Félagsgjald
Ákvörðun um félagsgjöld skal tekin á aðalfundi og endurskoðuð árlega. Félagsgjöld skal innheimta árlega.
9.gr. Rekstur
Reikningstímabil deildar miðast við aðalfund ár hvert. Skoðunarmenn reikninga sem kjörnir eru á aðalfundi úr röðum félagsmanna, skulu yfirfara reikninga fagdeildarinnar fyrir aðalfund. Rekstarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang fagdeildarinnar. Stjórn deildarinnar ber ábyrgð á fjárreiðum deildarinnar.
10. gr. Ársskýrsla
Deildin skal skila inn skýrslu um starfsemi sína til sviðstjóra fagsviðs Fíh fyrir lok marsmánaðar ár hvert (sbr. 12. gr. laga Fíh).
11.gr. Slit
Ákvörðun um slit deildarinnar skal taka á aðalfundi með ¾ hlutum greiddra atkvæða og renna eignir deildarinnar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Skili deildin ekki ársskýrslu til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins tekið ákvörðun um slit deildarinnar (sbr. 12. gr. laga Fíh).
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi Deildar hjúkrunarfræðinga á Norðvesturlandi 20. nóvember 2017.