Um deildina
Deild hjúkrunarfræðinga við Eyjafjörð var stofnuð 16. janúar 2018. Hjúkrunarfræðingar sem búa eða starfa við Eyjafjörð geta orðið félagsmenn í deildinni. Sækja þarf um aðild að deildinni.
Tilgangur deildarinnar er að vinna að eflingu og framgangi hjúkrunar við Eyjafjörð. Deildin skal vera stjórn og nefndum félagsins ráðgefandi um málefni hjúkrunar (skv. lögum Fíh 12.gr.).
Tilgangi sínum hyggst fagdeildin ná m.a. með því að:
- Vinna að framgangi hjúkrunar.
- Standa vörð um fagmennsku í hjúkrun.
- Stuðla að fræðslu og þróun hjúkrunarþekkingar.
- Vera málsvari hjúkrunar.
Stjórn
Formaður
Bergþóra Heiðbjört Bergþórsdóttir
Gjaldkeri
Sigrún Þórisdóttir
Ritari
Guðný Lilja Jóhannsdóttir
Meðstjórnandi
Eva Björg Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi
Ragnheiður Guðnadóttir
Starfsreglur
1.gr. Nafn
Nafn landsvæðisdeildarinnar er Deild hjúkrunarfræðinga við Eyjafjörð. Deildin starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Heimili og varnarþing er í Reykjavík en umdæmið er Eyjafjörður. Um þau atriði sem ekki koma fram í þessum samþykktum gilda lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh).
2.gr. Tilgangur
Tilgangur deildarinnar er að vinna að eflingu og framgangi hjúkrunar við Eyjafjörð. Deildin skal vera stjórn og nefndum félagsins ráðgefandi um málefni hjúkrunar (skv. lögum Fíh 12.gr.).
3.gr. Stefna
Tilgangi sínum hyggst fagdeildin ná m.a. með því að:
- Vinna að framgangi hjúkrunar.
- Standa vörð um fagmennsku í hjúkrun.
- Stuðla að fræðslu og þróun hjúkrunarþekkingar.
- Vera málsvari hjúkrunar.
4.gr. Félagsaðild
Rétt til aðildar að deildinni eiga hjúkrunarfræðingar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa og/eða búa á svæðinu.
Umsókn um aðild að deildinni skal berast til stjórnar deildar. Úrsögn úr deildinni er hægt að skila skriflega til stjórnar. Einnig getur stjórn litið á það sem úrsögn ef félagsmaður hefur ekki greitt árgjald deildarinnar tvö ár í röð.
5.gr. Starfstímabil
Starfstímabil deildarinnar er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi. Lög Fíh gilda um aðild nema sem lokið hafa 1. námsári fagsins.
6.gr. Aðalfundur
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum deildarinnar. Aðalfund skal halda í upphafi árs, eigi síðar en 1. apríl ár hvert og skal boða til hans með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara með sannarlegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Fundarboði skal fylgja dagskrá og tillögur sem fyrir honum liggja. Tillögur að breytingu á lögum skal berast stjórn eigi síðar en einni viku fyrir aðalfund.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- 1.Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
7.gr. Stjórn
Stjórn deildarinnar skal skipuð sex félagsmönnum, kjörnum á aðalfundi, til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega og má sami aðili gegna formennsku í að mesta lagi 3 tímabil í röð, þ.e. 6 ár í senn. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn. Meirihluti aðalfundar ræður kjöri. Kjöri skal þannig háttað að aldrei gangi fleiri en þrír kjörnir stjórnendur auk annars varamanns úr stjórn hverju sinni. Stjórnin skiptir með sér verkum, gjaldkera, ritara og þriggja meðstjórnenda. Kosning skal vera skrifleg og leynileg og fara fram eftir venjulegum reglum meirihluta atkvæða. Stjórn deildarinnar fer með málefni hennar milli aðalfunda. Formaður boðar til funda.
8.gr. Félagsgjald
Ákvörðun um félagsgjöld skal tekin á aðalfundi og endurskoðuð árlega. Félagsgjöld skal innheimta árlega.
9.gr. Rekstur
Reikningstímabil deildar miðast við aðalfund ár hvert. Skoðunarmenn reikninga sem kjörnir eru á aðalfundi úr röðum félagsmanna, skulu yfirfara reikninga fagdeildarinnar fyrir aðalfund. Rekstarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang fagdeildarinnar. Stjórn deildarinnar ber ábyrgð á fjárreiðum deildarinnar.
10. gr. Ársskýrsla
Deildin skal skila inn skýrslu um starfsemi sína til sviðstjóra fagsviðs Fíh fyrir lok marsmánaðar ár hvert (sbr. 12. gr. laga Fíh).
11.gr. Slit
Ákvörðun um slit deildarinnar skal taka á aðalfundi með ¾ hlutum greiddra atkvæða og renna eignir deildarinnar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Skili deildin ekki ársskýrslu til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins tekið ákvörðun um slit deildarinnar (sbr. 12. gr. laga Fíh).
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi Deildar hjúkrunarfræðinga við Eyjafjörð 16.01.2018 og uppfærð á aðalfundi 04.03.2020.