Styrktarsjóður
Styrktarsjóður er fjármagnaður með framlagi launagreiðanda í samræmi við ákvæði kjarasamninga. Í stjórn sjóðsins sitja hjúkrunarfræðingar fyrir hönd félagsins.
Félagsfólk Fíh getur sótt um styrk í styrktarsjóð ef atvinnurekandi þeirra hefur greitt styrktarsjóðsframlag í samtals sex mánuði, þar af samfellt í þrjá mánuði, þegar stofnað er til útgjalda vegna viðburðar sem sótt er um.
Réttur félagsfólks
Rétt í styrktarsjóð öðlast félagsfólk þegar greiðslur hafa borist í 6 mánuði í sjóðinn, þar af 3 mánuði samfellt áður en atburður sem veitir rétt til styrks úr sjóðnum átti sér stað. Sótt er um styrk í Styrktarsjóð á Mínum síðum, en til að hafa aðgengi að þeim þarf rafræn skilríki.
Heilsustyrkur
Veittur er styrkur í heild allt að 60.000 krónur á ári vegna heilsutengdra útgjalda. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Heilsurækt og endurhæfing er þó undanþegin skatti.
Mikilvægt er að senda inn kvittanir með umsókn sem sýna fram á að greitt hafi verið fyrir viðburðinn.
Sótt er um styrkinn á mínum síðum.
Umsóknir eru afgreiddar mánaðarlega, þó er heilsustyrkur ekki greiddur út í júlí. Umsóknum ásamt viðeigandi gögnum skal skila inn fyrir lok mánaðar. Að jafnaði er greitt út 24.-26. dag næsta mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Umsóknir sem berast í desember greiðast út í janúar en færast sem styrkur sama ár og umsókn barst.
Heilsurækt og endurhæfing er undanþegið skatti en heilbrigðiskostnaður er skattskyldur. Hér má sjá dæmi um hvað flokkast undir hvorn þátt.
- Líkamsrækt
- Sjúkraþjálfun
- Sjúkranudd
- Kírópraktor
- Næringaráðgjöf
- Sálfræðiþjónusta
- Áhættumat vegna hjarta- og æðasjúkdóma
- Gleraugnakaup
- Göngumæling/Innlegg
- Kaup á heyrnartæki
- Krabbameinsskoðun
- Námskeið til að hætta að reykja
- Tannlæknakostnaður
Fæðingarstyrkur
Fæðingastyrkur er að hámarki kr. 250.000 til foreldris fyrir hvert barns. Upphæð styrksins ákvarðast af starfshlutfalli. Sækja þarf um styrkinn innan eins árs frá fæðingu barns. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum og eru styrkir að jafnaði greiddir út 24.-26. dag mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Fæðingarstyrkur er skattskyldur.
Umsókninni þurfa að fylgja:
- Fæðingarvottorð barns
- Afrit af nýjasta launaseðli (mynd/skjáskot eða PDF skjal)
Sjúkradagpeningar
- Hámarks mánaðargreiðsla þeirra er starfa hjá ríki er kr. 400.000. Hámarkið miðast við fullt starf.
- Hámarks mánaðargreiðsla þeirra er starfa á almenna markaðinum er kr. 610.000. Hámarkið miðast við fullt starf.
- Nánari upplýsingar er að finna í úthlutunarreglum sjóðsins.
Fylla þarf inn umsóknareyðublað og því skilað inn ásamt viðeigandi gögnum á skrifstofu Fíh, Engjateig 9, 105 Reykjavík.
Sjúkradagpeningar eru að jafnaði greiddir út 24.-26. dag mánaðar eða næsta virka dag á eftir.
Umsókninni þurfa að fylgja:
- Læknisvottorð
- Launaseðill með starfshlutfalli
- Vottorð vinnuveitanda um tæmingu veikindaréttar
- Skattkort (valkvætt)
Útfararstyrkur
Aðstandendur hjúkrunarfræðinga geta sótt um útfararstyrk að upphæð kr. 350.000. Sótt er um útfararstyrk með tölvupósti á sjodir@hjukrun.is. Útfararstyrkur er að jafnaði greiddur út 24.-26. dag mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Nánari upplýsingar um útfararstyrk er að finna í úthlutunarreglum styrktarsjóðs.
Útfararstyrkur er greiddur vegna:
- Útfarar virks sjóðsfélaga
- Útfarar sjóðsfélaga sem látið hefur af störfum og andast innan árs frá því að greiðslur hættu að berast fyrir hann í sjóðinn
- Útfarar barna (18 ára og yngri) sjóðsfélaga
Nauðsynleg gögn:
- Dánarvottorð
Stjórn sjóðsins
Formaður
Rut Gunnarsdóttir
Guðrún Yrsa Ómarsdóttir
Svanlaug Guðnadóttir
Varamaður
Kristrún Þórkelsdóttir
Varamaður
Tryggvi Hjörtur Oddsson
Reglur
Um sjóðsaðild, rétt sjóðsfélaga og skipulag sjóðsins gilda starfsreglur Styrktarsjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (SFíh), samþykktar á aðalfundi Fíh 20. maí 2016. Samkvæmt 5. gr. þeirra setur sjóðsstjórn nánari úthlutunarreglur sem skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en árlega og samþykktar af stjórn Fíh.
Umsóknir og gögn
1. Umsóknir: Almennt þarf að sækja um styrki til sjóðsins á rafrænu formi á mínum síðum á vefsvæði Fíh http://www.hjukrun.is. Umsóknir eru afgreiddar mánaðarlega, þó er heilsustyrkur ekki greiddur út í júlí. Umsóknum ásamt viðeigandi gögnum skal skila inn fyrir lok mánaðar. Að jafnaði er greitt út 24.-26. dag næsta mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Umsóknir sem berast í desember greiðast út í janúar en færast sem styrkur sama ár og umsókn barst.
2. Gögn: Til að sjóðsfélagi geti fengið greitt úr sjóðnum þarf hann að skila inn eftirfarandi gögnum:
a. Fyrir sjúkradagpeninga: Læknisvottorði, launaseðlum síðustu þriggja mánaða með starfshlutfalli og vottorði um tæmingu veikindaréttar frá vinnuveitanda.
b. Fyrir fæðingarstyrk: Fæðingarvottorði barns og launaseðlum síðustu þriggja mánaða með starfshlutfalli.
c. Fyrir dánarbætur: Dánarvottorði.
d. Fyrir aðra styrki: Sundurliðuðum reikningi, með nafni umsækjanda og kennitölu, ásamt staðfestingu á greiðslu reikningsins. Á reikningnum þarf að vera áritun/stimpill/merki þess sem gefur reikninginn út með upplýsingum um nafn og kennitölu, ásamt lýsingu á því sem greitt er fyrir.
e. Starfsmaður sjóðsins getur óskað eftir frekari gögnum frá umsækjanda teljist þess þörf.
3. Staðgreiðsla af styrkjum: Greiðslur úr Styrktarsjóði eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af við afgreiðslu styrks. Dánarbætur og styrkir vegna heilsuræktar og endurhæfingar eru þó undanþegnir staðgreiðsluskyldu, sjá nánar á www.rsk.is.
4. Afgreiðsla umsókna: Starfsmaður sjóðsins afgreiðir umsóknir samkvæmt úthlutunarreglum þessum. Ef sjóðsfélagi sættir sig ekki við ákvörðun starfsmanns sjóðsins, á hann ávallt rétt á að vísa máli sínu til stjórnar SFíh.
5. Fyrning umsókna: Réttur til styrkja úr sjóðnum fyrnist sé ekki sótt um hann innan 12 mánaða frá því að til útgjalda var stofnað eða tekjutap varð.
Styrkir
1. Dagpeningar
Upphæð dagpeninga vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu fyrir sjóðsfélaga sem greitt er fyrir 0,55% iðgjald í sjóðinn (starfsmaður hjá hinu opinbera) miðast við starfshlutfall við upphaf veikinda m.v. launaseðla síðustu þriggja mánaða. Full mánaðargreiðsla er kr. 400.000 sem er kr. 18.459 fyrir hvern virkan dag eða 21,67 daga. Dagpeningar eru greiddir til viðbótar sjúkradagpeningum og/eða örorkulífeyri frá Tryggingastofnun Ríkisins, lífeyrissjóði eða öðrum greiðslum sem rekja má til fjarveru frá vinnu. Sjá þó c-lið 3. mgr. 3. gr. starfsreglna sjóðsins vegna atvinnulausra. Samanlagðar greiðslur sjóðsins, ofangreindra aðila og annarra styrkja skulu þó aldrei vera hærri fjárhæð en sem nemur því tekjutapi sem orðið hefur. Dagpeningar geta aldrei numið hærri upphæð en atvinnuleysisbætur sem fallið hafa niður.
Upphæð dagpeninga fyrir sjóðsfélaga sem greitt er fyrir 1% iðgjald í sjóðinn (starfsmaður á almennum vinnumarkaði) skal nema 80% af grunni inngreiðslna launagreiðanda vegna sjóðsfélaga í sjóðinn síðustu sex mánuði áður en launagreiðslur féllu niður, þó að hámarki 610.000 kr. á mánuði. Hafi launagreiðandi sjóðsfélaga greitt í færri en 6 mánuði samfellt fær sjóðsfélaginn greitt hlutfallslega. Þannig hefur sjóðsfélagi sem greitt hefur verið fyrir í sjóðinn í þrjá mánuði samfellt, einungis áunnið sér rétt til dagpeninga í þrjá mánuði. Allar skattskyldar greiðslur frá öðrum aðilum, svo sem Tryggingastofnun ríkisins eða lífeyrissjóði, umfram 20% af grunni inngreiðslna síðustu sex mánuði, koma að fullu til frádráttar dagpeningum frá sjóðnum.
Dagpeningar eru staðgreiðsluskyldir.
Réttur til dagpeninga vegna sannanlegs tímabundins tekjutaps sjóðsfélaga sökum óvinnufærni vegna veikinda eða slysa er sem hér segir:
a. Veikindi eða slys sjóðsfélaga: Sjóðurinn greiðir dagpeninga í allt að fjóra mánuði samanlagt vegna veikinda eða slysa sjóðsfélaga, þegar veikindarétti samkvæmt kjarasamningum sleppir.
b. Veikindi barns sjóðsfélaga: Sjóðurinn greiðir dagpeninga vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu í kjölfar langvinnra veikinda barns (þrír mánuðir eða lengur) í allt að fjóra mánuði samanlagt. Með barni í reglum þessum er auk kynbarns, kjörbarns og fósturbarns átt við stjúpbarn og barnabarn sem býr á heimili sjóðsfélaga eða þarfnast greinilega umönnunar sjóðsfélaga. Dagpeningar eru einungis veittir vegna barna undir 18 ára aldri. Með langtímaveikindum er átt við veikindi sem vara samfellt lengur en í 30 daga.
c. Veikindi maka sjóðsfélaga: Sjóðurinn greiðir dagpeninga í allt að tvo mánuði vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu vegna alvarlegra langtímaveikinda (þrír mánuðir eða lengur) maka eða sambúðarmaka. Þó er ekki greitt fyrir fyrstu tíu dagana í veikindum.
d. Fráfall nákominna: Við fráfall maka, sambúðarmaka eða barns greiðir sjóðurinn dagpeninga í allt að tvær vinnuvikur ef starfsmanni er ekki heimiluð fjarvera án skerðingar á launum. Sama gildir um fráfall annarra nákominna.
e. Annað: Greiddir eru dagpeningar vegna læknisrannsókna sem eru undanfari frekari aðgerða, líffæragjafar, aðgerða sem taldar eru nauðsynlegar að mati læknis, og áfengis- og fíkniefnameðferðar, í allt að 45 daga.
f. Tæming réttar: Réttur til greiðslu dagpeninga stofnast að nýju þegar greitt hefur verið vegna sjóðsfélaga í sex mánuði eftir að síðasta greiðslutímabili dagpeninga lauk. Hámarksfjöldi mánaða sem greiddir eru hverjum sjóðsfélaga er 12 mánuðir á hverju tíu ára tímabili.
2. Fæðingarstyrkur
Báðir foreldrar eiga rétt séu þeir aðilar að sjóðnum.
a. Sækja þarf um innan árs frá fæðingu barns.
b. Styrkurinn er kr. 250.000 til foreldris vegna hvers barns, þó í hlutfalli við starfshlutfall skv. launaseðlum síðustu þriggja mánaða.
c. Sé um að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu er greiddur út hálfur fæðingarstyrkur.
3. Dánarbætur
Greiddar eru dánarbætur að upphæð kr. 350.000 vegna fráfalls virks sjóðsfélaga eða sjóðsfélaga sem látið hefur af störfum og andast innan árs frá því að greiðslur hættu að berast fyrir hann í sjóðinn. Greiddur er styrkur til sjóðsfélaga vegna útfarar barna þeirra yngri en 18 ára. Styrkurinn er greiddur til þess sem útförina annast.
4. Heilsu- og heilbrigðisstyrkir
Greiddur er árlegur styrkur að hámarki kr. 60.000 fyrir heilsurækt, endurhæfingu og/eða heilbrigðiskostnað. Hægt er að skipta upphæðinni á milli einstakra liða. Einungis er greitt fyrir það sem sjóðsfélagi einn getur nýtt sér. Á heimasíðu RSK má sjá upplýsingar um skattalega meðhöndlun styrkja.
Gildistaka
Úthlutunarreglur þessar voru samþykktar í stjórn Fíh 24. janúar 2024 og taka gildi frá og með 1. mars 2024. Þær skulu birtar opinberlega á vettvangi Fíh t.d. á vefsvæði félagsins.
Heiti, varnarþing og heimili
Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (SFíh).
Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík og er starfsstöð sjóðsins staðsett á sama stað og starfsstöð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) er hverju sinni. Sjóðurinn er eign Fíh en úr honum er úthlutað í samræmi við starfsreglur þessar og úthlutunarreglur settar á grundvelli starfsreglna.
Hlutverk
Sjóðnum skal varið til þess að styrkja sjóðsfélaga með fé og koma þannig til móts við:
- tekjutap vegna ólaunaðrar fjarveru sjóðsfélaga frá vinnu vegna veikinda sjóðsfélaga, nákominna eða vegna annarra persónulegra aðstæðna,
- útgjöld vegna andláts sjóðsfélaga eða barna þeirra 18 ára og yngri,
- útgjöld sjóðsfélaga vegna íþróttaiðkunnar, heilsuræktar, endurhæfingar eða annarra heilsutengdra málefna, sbr. úthlutunarreglur sjóðsins, 2. gr., lið 5.
- Sjóðurinn veitir einnig fæðingarstyrki.
Form og aðild
1. Styrktarsjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (SFíh) er bundinn sjóður innan vébanda Fíh. Sjóðurinn stundar ekki atvinnurekstur og snýr rekstur sjóðsins eingöngu að hlutverki hans sem styrktarsjóðs hjúkrunarfræðinga. Eingöngu er heimilt að nýta fjármuni sjóðsins í samræmi við hlutverk hans samkvæmt 2. gr. reglna þessara og til rekstrar sjóðsins.
2. Sjóðsaðild öðlast hjúkrunarfræðingur vegna greiðslna sbr 3. mgr. á iðgjöldum í sjóðinn (styrktarsjóðsframlag) í þeirra nafni á grundvelli liða a-d:
a. Ákvæðis í kjarasamningi Fíh við ríki eða sveitarfélag,
b. Ákvæðis í kjarasamningi Fíh við sjálfseignarstofnun sem starfar í almannaþágu samkvæmt lögum, er á fjárlögum eða nýtur fjárframlaga til launagreiðslna úr ríkissjóði af daggjöldum eða úr sveitarfélagssjóði, sbr. 2. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna,
c. Ráðningarsamnings við sjálfseignarstofnun skv. b-lið,
d. Laga, kjarasamnings eða ráðningarsamnings sé launagreiðanda skylt að greiða af heildarlaunum sjóðfélaga í styrktarsjóð. Ákvæðið tekur einnig til sjálfstætt starfandi aðila sem standa skil á gjaldi sbr. framangreint.
3. Réttur sjóðsfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið styrktarsjóðsframlag vegna sjóðsfélaga samtals í 6 mánuði og þar af samfellt í 3 mánuði áður en atburður, sem veitir rétt til styrks úr sjóðnum, átti sér stað. Auk þess þarf hjúkrunarfræðingur að hafa sjóðsaðild sbr. 2. mgr 3. greinar í reglum þessum. Nýr réttur myndast ekki vegna greiðslna vinnuveitanda á launum í uppsagnarfresti eða vegna annars konar launagreiðslna í tilefni af starfslokum. Sjóðsfélagar sem ekki eru starfandi halda réttindum sínum í sjóðnum að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
a. Í fæðingarorlofi: Sjóðsfélagar sem fara í fæðingarorlof og velja að greiða stéttarfélagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum meðan á því stendur halda fullum réttindum.b. Í veikindum: Sjóðsfélagi sem hefur fullnýtt rétt sinn til dagpeninga nýtur áfram annarra réttinda í sjóðnum í allt að eitt ár. Stofni sjóðsfélagi til réttinda í öðrum styrktarsjóði, sem er sambærilegur SFíh, fellur niður réttur í SFíh.
c. Atvinnulausir: Sjóðsfélagar með full réttindi við upphaf atvinnuleysis halda réttindum sínum í eitt ár, enda hefjist bótatímabil eða til útgjalda sé stofnað innan árs frá upphafi atvinnuleysis. Skilyrði er að greitt sé félagsgjald af atvinnuleysisbótum til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
d. Launalaust leyfi: Sjóðsfélagar halda réttindum í launalausu leyfi í allt að þrjá mánuði. Styrkréttur miðast þó við að viðkomandi hefji störf að nýju um leið og launalausu leyfi lýkur. Ekki eru greiddir dagpeningar vegna veikinda í launalausu leyfi.
e. Við starfslok: Sjóðsfélagar halda réttindum í 12 mánuði eftir að þeir láta af störfum og fara á lífeyri. Dagpeningar eru þó ekki greiddir lengur en í þrjá mánuði.
4. Fyrrverandi sjóðsfélagar njóta ekki réttar til styrkja úr sjóðnum.
5. Sjóðsaðild og réttindi eru bundin tilteknu starfshlutfalli. Sjóðsstjórn miðar úthlutunarreglur svo sem fjárhæð dagpeninga, við starfshlutfall sjóðsfélaga á þeim tíma þegar atburður sem veitir rétt til styrks úr sjóðnum, átti sér stað.
6. Sá sem gefur rangar eða villandi upplýsingar eða lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar, missir rétt til bóta í allt að tvö ár samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins. Í slíkum tilfellum er sjóðsstjórn heimilt að endurkrefja bótaþega um alla bótafjárhæðina auk dráttarvaxta.
Sjóðsstjórn
1. Sjóðsstjórn skipa þrír félagsmenn Fíh og tveir til vara. Starfstími stjórnar skal vera tvö ár í senn og skal stjórnarkjör fara fram á aðalfundi Fíh annað hvert ár.
2. Sjóðsstjórn skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti en því sem ákveðið er í 1. mgr. 4. gr. Embætti innan stjórnarinnar eru formaður, ritari, og meðstjórnandi. Jafnframt skal ákveðið hver er 1. og hver er 2. varamaður og skulu þeir taka sæti í stjórn í þeirri röð láti einhver aðalmanna af stjórnarstörfum.
3. Enginn stjórnarmaður skal sitja lengur en 8 ár samfellt í stjórn sjóðsins. Komi til þess að stjórnarmenn láti af störfum og ekki eru til staðar varamenn til að taka sæti í stjórn, skal stjórn Fíh skipa í stjórnina, þ.m.t. tvo varamenn, sem sitji fram að næsta aðalfundi Fíh.
4. Sjóðsstjórn annast alla umsjón með eignum sjóðsins og fer með daglegan rekstur hans í samstarfi við fjármálastjóra Fíh og starfsmann sjóðsins. Sjóðsstjórn skal leggja fyrir aðalfund Fíh skýrslu um starfsemi og reikninga sjóðsins. Allar ákvarðanir varðandi fjárfestingar, fjárfestingarstefnu og aðrar skuldbindingar skulu háðar samþykki stjórnar Fíh.
5. Sjóðsstjórn og þeir starfsmenn Fíh sem koma að vinnu umsókna skulu skrifa undir þagnarskyldu.
Úthlutunarreglur
Sjóðsstjórn setur úthlutunarreglur sem skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en árlega og samþykktar af stjórn Fíh.
Samþykkt á aðalfundi Fíh 20. maí 2016