

Fundarmenn hafa til 5. júní til að gera athugasemdir, annars telst fundargerðin samþykkt. Athugasemdir sendist á ari@hjukrun.is.
Fundargögn
Fundargerð
PDF, 1.8 mb
Dagskrá
PDF, 130 kb
1.0 Kosning fundarstjóra og ritara
PDF, 78.6 kb
2.0 Skýrsla um starfsemi félagsins á liðnu starfsári
PDF, 19.8 mb
3.0 Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
PDF, 400.9 kb
4.0 Ákvörðun um félagsgjöld
PDF, 164.5 kb
5.0 Ákvörðun um laun stjórnar, sjóða og nefnda
PDF, 119.7 kb
6.0 Afgreiðsla markmiða og starfsáætlunar næsta árs
PDF, 325.4 kb
7.0 Tillögur til lagabreytinga
PDF, 166.2 kb
8.0 Formannskjöri lýst
PDF, 84.2 kb
9.0 Kosning 3 stjórnarmanna og 1 varamanns í stjórn
PDF, 105.8 kb
10.0 Kosning skoðunarmanna
PDF, 78.6 kb
11.0 Kosning í nefndir og sjóði félagsins
PDF, 160.2 kb
12.0 Önnur mál: Stofnun nýrra deilda
PDF, 626 kb
Ályktanir
PDF, 240.9 kb
Hvatningarstyrkir
PDF, 198 kb
Rannsóknarstyrkir B-hluta Vísindasjóðs
PDF, 280.6 kb


Framboð
Auglýst var eftir framboðum til stjórnar, í ritnefnd, stjórn orlofssjóðs, stjórn styrktarsjóðs, kjörnefnd ásamt skoðunarmönnum reikninga. Framboðsfrestur var til og með 17. apríl. Eftirtaldir hjúkrunarfræðingar eru í framboði.
Framboð til stjórnar
Óskað var eftir þremur aðalmönnum í stjórn og einum varamanni.
Þrír eru í framboði til aðalmanns:
Kristófer Kristófersson
Margrét Árdís Ósvaldsdóttir
Wendill Galan Viejo
Einn hjúkrunarfræðingur er í framboði til varamanns:
Katrín Ösp Jónsdóttir
Ritnefnd
Óskað var eftir fjórum framboðum í ritnefnd, tveir fulltrúar í almenna hlutann og tveir fulltrúar í ritrýnda hlutann. Fjórir eru í framboði:
Hildur Dís Kristjánsdóttir
Inga Valgerður Kristinsdóttir
Sólveig Auðar Hauksdóttir
Sigrún Sunna Skúladóttir
Stjórn orlofssjóðs
Óskað var eftir fimm framboðum í stjórn orlofssjóðs. Fimm eru í framboði:
Auður Sveinbjörg Jóhannsdóttir
Guðný Valgeirsdóttir
Halla Hrund Arnarsdóttir
Inga Valborg Ólafsdóttir
Ingunn Steinþórsdóttir
Stjórn styrktarsjóðs
Óskað var eftir þremur aðalmönnum og tveimur varamönnum í stjórn styrktarsjóðs. Þrír eru í framboði til aðalmanns:
Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir
Rut Gunnarsdóttir
Tryggvi Hjörtur Oddsson
Tveir eru framboði til varamanns:
Hjördís Halldóra Sigurðardóttir
Ólöf Árnadóttir
Kjörnefnd
Óskað var eftir þremur aðalmönnum og einum varamanni í kjörnefnd. Þrír eru í framboði til aðalmanns:
Kolbrún Gísladóttir
Ólafur Skúlason
Þórey Erna Guðmannsdóttir
Einn er í framboði til varamanns:
Kristín Katla Swan
Skoðunarmenn reikninga
Óskað var eftir tveimur skoðunarmönnum reikninga. Tveir eru í framboði:
Birgir Örn Ólafsson
Guðbjörg Pálsdóttir


Tvær ályktanir voru lagðar fram og voru þær báðar samþykktar.
Ályktun 1
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 15. maí 2025 skorar á stjórnvöld að krefjast íslenskukunnáttu hjá hjúkrunarfræðingum af erlendu þjóðerni til að þeir geti öðlast starfsleyfi og tryggja þeim jafnframt inngildingu í íslenskt samfélag.
Á síðustu þremur árum hefur fjöldi starfandi hjúkrunarfræðinga af erlendu þjóðerni fjölgað úr 6% í 11%. Árið 2024 voru tæplega þriðjungur hjúkrunarleyfa hjá embætti landlæknis veitt hjúkrunarfræðingum af erlendu þjóðerni. Gera þarf kröfu við starfsleyfi hjúkrunarfræðinga um kunnáttu í íslensku og þekkingu á viðeigandi lögum og reglugerðum sem eru nauðsynleg til að geta starfað sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi. Tryggja þarf þeim fullnægjandi stuðning varðandi starfs- og menningarbundna þætti, sanngjörn laun og öruggt starfsumhverfi. Á þessum þáttum hefur verið brotið gagnvart hjúkrunarfræðingum af erlendu þjóðerni og er það óásættanlegt.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga styður hjúkrunarfræðinga af erlendu þjóðerni sem vilja flytja búferlum til Íslands og ráða sig til starfa en ekki í formi skipulegra ráðninga. Yfirvöld og atvinnurekendur þurfa að fara eftir reglum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og uppfylla skuldbindingar um siðferðileg vinnubrögð og jafnan rétt en með skipulögðum ráðningum er einungis verið að flytja mönnunarvandann á milli landa.
Ályktun 2
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 15. maí 2025 hvetur heilbrigðisstofnanir til að ljúka við gerð stofnanasamninga fyrir lok júnímánaðar.
Í kjölfar undirritunar miðlægra kjarasamninga í lok síðasta árs hefur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lagt mikla áherslu á að ljúka endurnýjun stofnanasamninga við allar heilbrigðisstofnanir og stærstu fyrirtækin innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV). Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gerir kröfu um að markviss starfsþróun verði tekin upp fyrir hjúkrunarfræðinga. Búið er að ljúka 3 samningum og viðræður í gangi við all flesta viðsemjendur en þær hafa takið alltof langan tíma.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga telur mjög brýnt að klára endurnýjun stofnanasamninganna hið fyrsta enda eru þeir hluti af kjarasamningi hjúkrunarfræðinga.
Hvatningarstyrkir

Fimm hjúkrunarfræðingar fengu hvatningastyrk.
Sunnefa Lindudóttir
Sunnefa er hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á Hrafnistu. Hún hefur verið í fararbroddi við að innleiða Namaste hugmyndafræði á mörg hjúkrunarheimili á Íslandi. Sunnefa hefur leitt þessa nálgun af einstakri alúð og fagmennsku.
Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir
Ragnheiður Hulda er hjúkrunarfræðingur með MBA gráðu. Hún hefur sinnt leiðtogahlutverki í íslenskri heilbrigðisþjónustu um árabil. Í dag er hún forstjóri SÁÁ þar sem hún hefur lyft grettistaki í þjónustu stofnunarinnar og komið af stað raunverulegum umbótum með gildi og hugmyndafræði hjúkrunar að leiðarljósi.
Dagbjört S Bjarnadóttir
Dagbjört hefur staðið vaktina sem hjúkrunarfræðingur í Mývatnssveit um áratugabil. Hún hefur mikinn áhuga á heilsu samfélagsins og vann meðal annars að innleiðingu heilsueflandi samfélags í Mývatnssveit. Dagbjört er framúrskarandi hjúkrunarfræðingur og klínískur kennari fyrir aðra hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarnema
Elma Rún Ingvarsdóttir
Elma Rún er sérfræðingur í barnahjúkrun og hefur helgað starfskrafta sína bráðveikum börnum. Hún beitir sér af krafti fyrir bættum aðbúnaði barna á sjúkrahúsum og auknum gæðum barnahjúkrunar með kennslu og rannsóknum. Elma Rut hefur verið leiðandi í þróun og kennslu endurlífgunar barna og hefur átt lykilþátt í innleiðingu sérhæfðra námskeiða á því sviði.
Malín Guðmundsdóttir
Malín er hjúkrunarfræðingur með meistaragráðu í hjúkrun með áherslu á sárameðferð. Malín starfar í Transteymi Landspítala. Á stuttum tíma hefur hún stóreflt hjúkrunargöngudeild fyrir transfólk í tengslum við kynstaðfestandi aðgerðir og þannig hefur hún bætt til muna hjúkrunarþjónustu við þennan hóp.
Styrkhafar rannsóknarstyrkja B-hluta Vísindasjóðs

Aðalbjörg Albertsdóttir
Viðtalsrannsókn um reynslu fólks af svefnleysi og verkjum sem trufla svefn; áhersla á samband verkja og svefnleysis.
Berglind Gunnarsdóttir
Tíðni og eðli kulnunareinkenna meðal starfsfólks og stjórnenda í heilbrigðis- og félagsþjónustu innan Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins HH.
Brynja Ingadóttir
Þekking hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á þrýstingssárum og þrýstingssáravörnum - þversniðsrannsókn.
Erla Kolbrún Svavarsdóttir
Aðlögun og áskoranir fjölskyldna barna og unglinga í virkri meðferð með langvinna sjúkdóma/heilsufarsvanda að lífi fjölskyldunnar: Alþjóðleg langtímarannsókn.
Fanný B. Miller Jóhannsdóttir
Ljósameðferð við nýburagulu í heimahúsi - Upplifun foreldra (e. Homephototherapy for jaundice in the newborn - Parental experience).
Ingibjörg Ingólfsdóttir
Comparing Changes in Objective Measures of Sleep Quality During the Menstrual Cycle in Healthy Women: Association with Ovarian Hormones and Mood.
Katrín Ösp Jónsdóttir
Skuggahliðar starfsins, þungbær reynsla í starfi hjúkrunarfræðinga.
Maria Finster Úlfarsson
Þátttaka fullorðinna barna við umönnun aldraðra mæðra á hjúkrunarheimilum og þarfir þeirra fyrir fræðslu og stuðning: Þýðing og staðfæring matstækis og þversniðsrannsókn.
Rósa Jóhannesdóttir
Að eiga maka á hjúkrunarheimili. Fyrirbærafræðileg rannsókn á reynslu aldraðra einstaklinga sem eiga maka með heilabilunarsjúkdóm á hjúkrunarheimili.
Sigríður Gunnarsdóttir
Lífsgæði, langvinn og síðbúin áhirf krabbameins og krabbameinsmeðferðar: Lýðgrunduð samanburðarranssókn hjá einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein á Íslandi.
Sigríður Zoéga
Mat á sérhæfðri lyfjagjöf við langvinnum, erfiðum verkjum.
Sigríður Zoéga
Verkir og notkun ópíóíða eftir skurðaðgerð (Pain and opioids after surgery, PANDOS)
Þorbjörg Anna Steinarsdóttir
Kraftmiklir krakkar: Árangur og upplifun af lífstílsmeðferð fyrir börn með offitu og foreldra þeirra, veitt í heilsugæslu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Þórhildur Höskuldsdóttir
Reynsla erlendra hjúkrunarfræðinga af starfi á Landspítala.
Wendill Galan Viejo
Samspil einstaklings og kerfis – Reynsla erlendra hjúkrunarfræðinga á íslensku háskólasjúkrahúsi: Eigindleg rýnihóparannsókn